NOTE: This article is more than 5 years old.

06 nóvember 2020

/

Hannes fékk áheyrn Svíakonungs

{image.Description}
Ljósmynd/Kungliga hovstaterna, foto Sanna Argus Tirén.
Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Svíþjóð, og Karl Gústaf Svíakonungur

Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Svíþjóð, fékk áheyrn hjá Karli Gústaf Svíakonungi í konungshöllinni í Stokkhólmi í gær í tengslum við afhendingu trúnaðarbréfs síns sem fór fram í september sl.

Á fundi þeirra var rætt um vinsamleg samskipti ríkjanna, náttúruvernd, meðal annars með tilliti til villtra laxastofna, málefni norðurslóða og hlutverk Háskólans á Akureyri á sviði þess mikilvæga málaflokks.

Þá sagði konungur að sérstaklega ánægjulegt hefði verið að taka á móti íslensku forsetahjónunum í opinberri heimsókn þeirra til Svíþjóðar í janúar 2018.